Þegar Bankarnir verða einkavæddir að nýju, tel ég rétt að reyna þá leið sem Pétur Blöndal hefur talað fyrir, þ.e. að skattgreiðendum verði afhent hlutabréf í bönkunum, Þar fyrir utan væri hægt að setja eitthvert þak á hámarks eignarhlut einstaklinga og lögaðila.
Skekkja í umræðu stjórnmálamanna(okkar kjörnu fulltrúa) um atvinnuvegina.
Áherslur stjórnmálamanna á stóriðju, fjármálastarfsemi og jafnvel byggingariðnað hefur fært áhersluna frá almennri fjölhæfri umræðu um atvinnulíf og atvinnuuppbyggingu. Þetta sýndi sig í ásókn ungs fólks í menntun tengdum þessum greinum og þá um leið í minni ásókn í aðrar greinar. Við verðum alltaf að bjóða uppá fjölbreytta sín, hlaðborð möguleika þar sem við, fólkið, velur atvinnuveg til að starfa í og byggja upp
Sjálfstæðisflokkurinn verður að viðurkenna mistök sín í hagstjórn undanfarinna ára. Það er grundvallaratriði til að byggja upp traust meðal þjóðarinnar í framtíðinni. Margt mjög gott var gert frá því 1991 en einhverstaðar bar okkur af leið og eftirlitsskylda brást með of stóru bankakerfi.
Mín skoðun er tæpast hugmynd, ætti frekar að túlkast sem skoðun. Endurreisn mun eiga sér stað á Íslandi. En ég mun treysta þeim til þeirra verka sem hafa borið gæfu til að endurreisa sjálfan sig fyrst. Þar meina ég að axla ábyrgð á fortíðinni og hreinsa til í eigin ranni. Ef litið er á hvað gerist í XD nú um stundir, sé ég ekkert annað en valdatafl og fyrirslátt þeirra sem ábyrgð bera. Þetta er mannlegt að reyna að komast hjá ábyrgð. En flokkurinn verður sjálfur r að draga ábyrga flokksmenn til reikningsskila ef hann á að njóta míns trausts til endurreisnar. Hér vil ég nefna nöfn eins og:
Árna Mathiesen, sparisjóðir og varnarsvæðið
Þorgerður Katrín, Hægri sjö
Pétur Blöndal, Sparisjóðir landsmanna
Illugi, Peningamarkaðssjóður "tapaði sjálf"
Kjartan Gunnarsson, Landsbankinn
Davíð Oddson, einkavæðing og valdaafsal til Halldórs og Finns.
Því miður eru dæmin fleiri og því miður veit ég af tug annarra XD kjósenda sem eru sama sinnis og ég.
Sérstaklega er það særandi hvað XD hefur verið óheppið með sína kvenfulltrúa. Það er eins og þær sogist að spillingarmálum. Sólveig og olíusamráðið, Þorgerður og Hægri sjö.
Annars vona ég að það verði til borgaralegur einkaframtaksflokkur á Íslandi sem hægt verður að treysta og ekki stjórnast af humyndafræði Hannesar Hólmsteins.
Kveðja Ingrid Björnsdóttir
Bankar hafa til þessa nýtt sér ákvæði í lögum um gjaldþrotaskipti sem heimilar riftun samninga að 24 mánuði aftur í tímann. Er ekki eðlilegt að þeir fjármundir sem greiddir voru í formi kaupréttarsamninga til stjórnenda þessa gjaldþrota fyrirtækja verði rift og gengið á þessar eignir áður en almenningur á Íslandi fari að greiða það sem uppá vantar í slíkum gjaldþrotum.
Skýrari aðgreining hinna greina ríkisvaldsins. Styrkjum Alþingi og drögum úr vægi framkvæmdavaldsins með því að ráðherrar gegni ekki þingmennsku á sama tíma.