Hvað hefðum við getað gert betur?
Yfirreiðin miðast við upphaf þessa kjörtímabils.
1) Það átti aldrei að hefja stórnarsamstarf við Samfylkinguna
2) Ráðherraliði var ekki skipt út eins og þurft hefði að gera
3) Nýir þingmenn fengu ekki hlutverk sem skyldi :
-Guðfinna S. Bjarnadóttir, hefði getað unnið stórvirki fyrir flokkinn
-Kristján Þór Júlíusson hefði getað fengið meira áberandi hlutverk
-Ragnheiður Ríkharðsdóttir hvarf eins og aðrir þingmenn
4) Móttaka nýrra þingmanna og tilskólun með mögulegri endurgjöf frá nýju fólki var vanrækt
5) Fiskveiðistjórnun var ekki nægjanlega framsækin
6) Hvalveiðar átti að leyfa fyrir lifandislöngu
7) Bindiskyldu hefði þurft að hækka, þó ekki hefði verið nema 0,25%...henni hefði verið henkkt, en það hefði þá verið sýnilegt þjóðinni
8) Takmarka hefði þurft færslu peningaflæðis, þó ekki um of (skattlangning í átt að því sem Stiglitz lagði til í skýrslu fyrir Seðlabankann)
9) Leitað hefði mátt vera leiða til að sækja vinnu til landsins með samvinnu við Marel, Össur, Promens, Actavis... breyta hefði mátt skattalöggjöf fyrir stórfyrirtæki, eins og gert er fyrir stóriðju. Vöxtur á Íslandi hefði verið jákvæð styrking
10) Nálganir í Heilbrigðisgeiranum voru gerðar út frá KOLRÖNGUM upphafspunkti. Einkarekstur hefði þurft að blómstra með því að fara með heilbrigðisgeirann í útrás. Það hefði mátt eyða peningum í það að sækja peninga. Það hefði mátt nýta sér vöxt í þessum geira til að auka og bæta þjónustu allra landsmanna um leið og sjúklingar hefðu komið til landsins utan frá.
11) Í stað þess að hreyfa við kvótanum, hefði mátt búa til vísindaveiðar fyrir smábáta, sesm hefðu mátt landa utan kvóta veiði sinni. Þennan afla hefði að hluta til mátt tengja byggðarlögum.
12) Leyfa þarf túristaveiðar án vigtunar
13) Sprotafyrirtækjum þarf að veita tímabundið og árangurstengt skattaskjól og það á við um nýþróun líka. Samt er nauðsynlegt að setja þessum fyrirtækjum strangann ramma um staðsetningu starfstöðva og árangurstengdar tilslakanir þarf að tryggja. Þetta mætti samt ekki kalla á stærra eftirlit en 2-3 manna nefnd (sem þó yrði, að líkindum, að vera í fullu starfi).
14) Afnema hefði þurft niðurgreiðslur til landbúnaðar í þrepum. Horfa hefði mátt til Nýja Sjálands með árangur þeirra.
15) Breyta hefði þurft vísitöluviðmiðun verðtryggðra lána þannig að viðmiðið verði launavísitala. Þetta hefði þá eingöngu verið hægt með því að koma húsnæðislánapökkunum (nánast) öllum til Lífeyrissjóðanna, sem hafa sínar tekjur og sín gjöld ÖLL í beintengingu við launavísitölu.
16) Eftir að kreppan skall á hefði þurft að fara með skatta á fyrirtæki tímabundið niður í 5%. Hækka svo aftur eftir 2 ár í 10%.
17) Færa hefði þurft ALLA hugbúnaðarnotkun hins opinbera til opins hugbúnaðar (Open source) brottfall leyfisgjalda hefði mátt nýta til að fjármagna ný störf í utanumhaldi.