Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins mun kynna vinnu sína í ítarlegri skýrslu, sem skiptist í nokkra hluta. Í þessum kafla skýrslunnar er úttekt á þróun efnahagsmála og farið yfir hvað betur hefði mátt fara í íslensku efnahags- og atvinnulífi á undanförnum árum. Leitast er við að skýra þróun mála hér á landi í samanburði og samhengi við umheiminn og hvernig spár um framvindu mála hafa breyst eftir því sem vandi atvinnulífsins hér á landi sem annars staðar hefur aukist. Reynt er að velta við sem flestum steinum og álykta um hvernig hægt sé að gera betur. Hér verða birt drög að texta í skýrsluna og notendum vefsins gefst kostur á að segja sína skoðun á.

Skuldir heimilanna brenna nú á mörgum, þar sé ég þá einu leið færa að létta á greiðslubyrði fólks og lengja í lánum. Að fella niður hluta af skuldum finnst mér ófær leið enda segir það sig sjálft að niðurfelling skulda að hluta til eða öllu leyti þýðir að einhverjir aðrir t.d. skattgreiðendur þurfa að borga þann brúsa.
Leiðrétting:
Fram hefur komið réttmæt efnisleg gagnrýni á „Drög“ okkar hóps í Endurreisnarnefndinni. Sér í lagi er varðar lagalega aðkomu Sí að ICESAVE. Hið rétta er að SÍ hafði skv. lögum enga beina aðkomu að málinu en auðvitað má um það ræða hvort SÍ hefði ekki getað komið óbeint að þessu máli með leyfisveitingar til Landsbanka og Kaupþings að reka sparifjársöfnun erlendis, eða gegnum FME pog
Leyfisveitingar til handa Landsbanka og Kaupþings voru alfarið á borði viðskiptaráðuneytis og samþykkt þar en FME hafði eftirlitsskyldu.
Þessari leiðréttingu er hérmeð komið á framfæri, sjálfsagt má finna fleiri missagnir í textanum og við fögnum því að fá efnislegar athugasemdir. Í anda lýðræðisins eru drögin opinber.
Mk,
Sigurður Örn Ágústsson (siggi@sigurdurorn.is)