ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐASAMKEPPNISHÆFNIHUGMYNDIR

Hugmyndir

Mér skilst að hópmálaferli sé ekki hægt að reka sem dómsmál á Íslandi. Ef, sem dæmi, smærri hluthafar vilja hópa sig saman til að sækja rétt sinn og reka það sem opinbert mál þá sé það ekki hægt heldur verður hver og einn hluthafi að reka einkamál. Þetta er EKKI til að stuðla að rétti smærri hluthafa og því nauðsynlegt að fá löggjöfinni breytt þannig að hægt sé að reka svokölluð "Class Action" mál, samanber eins og hægt er í USA. ....... Sniðugt þetta hjá ykkur að hafa hugmyndabanka hér - Gott mál og gangi ykkur vel. kv.Jón Egill

Jón Egill Bragason 02/03/2009 Kl. 22:16

Þessi pistill minn birtist að hluta til í í tímaritinu Þjóðmál fyrir þremur árum en ég tel að hann eigi enn fullt erindi til flokksins í dag, þó að tölur þurfi að sníða að deginum í dag og reikna megi inn talsverða hækkun í krónutölum. Það hefur töluvert vantað upp á að menningarmál séu til umræðu í Endurreisnarnefnd svo ég varpa þessu fram svona til skoðunar fyrir nefndina:

Til úthlutunar úr Launasjóði myndlistarmanna ár hvert eru umtalsverðir fjármunir. Launasjóður myndlistarmanna hefur til ráðstöfunar 320 mánaðarlaun á ári, en launin eru rétt tæpar 220.000 krónur á mánuði. Mjög margir góðir myndlistarmenn hafa fengið starfslaun úr Launasjóði myndlistarmanna sem skipt hafa sköpum um framtíð þeirra sem fagmanna. Afar mikilvægt er að hlúa vel að myndlistarfólki og styrkja starfsumhverfi þeirra. Ljóst er að auka þarf fjármagn til Launasjóðs myndlistarmanna til muna.

Sennilega er nú komið að kaflaskilum eftir 15 ára átakasögu um það fjármagn sem til skiptanna er og þörf er á því að nýjar hugmyndir og aðferðir um úthlutanir líti dagsins ljós. Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með úthlutunum og átökum þeim tengdum er fróðlegt að rifja upp undirskriftarplagg sem dagsett er 9. apríl 1997, en undir það skrifaði rúmlega helmingur allra starfandi myndlistarmanna á Íslandi. Í skjalinu segir:

„Af gefnu tilefni hvetjum við undirritaðir myndlistarmenn stjórn SÍM og menntamálaráðuneytið til að beita sér fyrir eflingu Launasjóðs myndlistarmanna og mælumst til þess að neðangreindar reglur verði settar sem starfsreglur úthlutunarnefndar sjóðsins.
Á meðan fjöldi umsækjenda er margfalt meiri en fjöldi þeirra starfslauna sem í boði eru, er nauðsynlegt að reglur gildi um úthlutun sem eiga að tryggja það að starfslaunahópurinn sé fyrir hinn breiða hóp íslenskra myndlistarmanna og að sem flestir þeirra sem þörf hafa og uppfylla skilyrði til að njóta þeirra.

Taka skal tillit til þess hvað umsækjandi hefur áður fengið af starfslaunum.
Viss tími þarf að líða frá lokum síðasta styrktímabils listamannsins þar til hann verður styrkhæfur aftur.

a) Að afloknu 3ja ára styrktímabili þurfa að líða 3 ár.

b) Að afloknu 2ja ára styrktímabili þurfa að líða 2 ár.

c) Að afloknu 1 árs styrktímabili þarf að líða 1 ár.

d) 6 mánaða styrktímabil úthlutist eigi oftar en tvö ár í röð, síðan þarf að líða 1 ár.“

Það er ljóst af þessu skjali að oft hefur verið hart deilt um hvert fjármunir Launasjóðs myndlistarmanna fara og hvers vegna. En óánægja með úthlutanir sjóðsins hefur þó keyrt um þverbak á síðustu árum og misboðið réttlætiskennd margra.

Það eru áreiðanlega fáir opinberir sjóðir sem jafn augljóslega láta sig engu varða hugtök eins og „ómálefnalega mismunun“. Má ganga svo langt að segja að leppar vinstrimanna í stjórn Sambands íslenskra myndlistarmanna hafi á undanförnum árum deilt og drottnað í Launasjóði myndlistarmanna.

Forvitnilegt er að skoða úthlutanir úr Launasjóði myndlistarmanna í ár – og raunar líka síðustu tveggja ára þar á undan – með hliðsjón af áskorunarbréfi listamanna sem sent var frá Sambandi íslenskra myndlistarmanna 31. október 2005 til allra félaga í SÍM. Í áskorunarbréfinu voru myndlistarmenn hvattir til þess að hunsa samkeppni sem Landsvirkjun stendur að við Kárahnjúka og Fljótsdalsvirkjun.

Af þeim 4 sem fengu lengstu starfslaunin í ár, eða 2 ár hver, voru 3 úr áskorendahópnum. Af þeim 4 sem hlutu lengstu starfslaun á árinu 2005 voru 3 sem skrifuðu undir áskorendabréfið í haust. Augljósar vísbendingar um tengingu við áskorendabréfið má einnig finna í úthlutun Launasjóðs myndlistarmanna árið 2004.

Þessar úthlutanir eru staðreyndir og í ljósi þeirra má draga þá ályktun að hópur vinstri manna og umhverfisverndarsinna hafi komið sér upp svikamyllu með hjálp Sambands íslenskra myndlistarmanna til að skipta á milli sín starfslaununum með skipulegum hætti. Þeir myndlistarmenn sem ekki tengjast þessari ráðandi klíku með einhverjum hætti eiga enga von um að fá úthlutað úr Launasjóði myndlistarmanna.

Með dæmum má leiða líkur að því að tilteknum listamönnum sé beinlínis umbunað fyrir staðfasta túlkun á vinstri hugmyndafræði í verkum sínum. Þá virðist þeim listamönnum umbunað skipulega sem tjá vinstri skoðanir með áberandi hætti í fjölmiðlum. Gott dæmi um þetta finnst í úthlutun ársins 2006, þar sem vinstri manni hefur nú verið umbunað með tveggja ára starfslaunum. Jafnframt því að vera starfslaunaþegi er sá stjórnmálamaður og situr öðru hverju á Alþingi fyrir vinstri græna. Þeir sem tjá opinberlega skoðanir sem teljast til hægri í stjórnmálum eiga hins vegar ekki upp á pallborðið.

Samband íslenskra myndlistarmanna fer með umboð til að velja fólk í úthlutunarnefnd Launasjóðs myndlistarmanna og er skylt að velja fólk í úthlutunarnefnd sem hafið er yfir allan grun um pólitísk tengsl og klíkuskap. Listamannalaun skyldi ætíð veita fyrir verk í þágu listarinnar en ekki eftir stjórnmálaskoðunum eða vinatengslum.

Réttast væri að menntamálaráðuneytið tæki Samband íslenskra myndlistarmanna til rækilegrar skoðunar í ljósi hagsmunatengsla vinstri manna og tilburða þeirra til að ráðstafa opinberu fé og mismuna einstaklingum með ómálefnalegum hætti. En í ráðuneytinu er ástandið því miður þannig að enginn þorir eða virðist hafa vald til að taka á hagsmunasamtökum sem stunda ómálefnalega mismunun, nema ráðherra sem vill þó sennilega ekki rugga bátnum. Rétt er að geta þess hér að árlega fær Sambandið úthlutað mörgum milljónum í eigin rekstur frá Fjárlaganefnd Alþingis. Umsóknir sambandsins eru gerðar í nafni aðildarfélaga þess en þau fá ekkert af styrknum. Þeir myndlistarmenn sem kjósa að standa fyrir utan sambandið en eru þó í aðildarfélögum þess eru sniðgengnir og njóta ekki þeirra fríðinda sem Sambandið býður upp á með hjálp ríkisstyrkja. Með öðrum orðum ríkið stendur að mismunun meðal myndlistarmanna.

Rangsleitni af því tagi sem viðgengist hefur við úthlutun úr Launasjóði myndlistarmanna á undanförnum árum er hins vegar ólíðandi og ljóst að utanaðkomandi aðili þarf að skerast í leikinn. Fólk gefst eðlilega upp á því að taka þátt í leik þar sem ekki er farið að leikreglum og dómarinn dæmir stöðugt öðru liðinu í hag.

Skyldi vera eitthvert samband milli þess að á fimmta tug færri umsóknir bárust til Launasjóðs myndlistarmanna í ár en í fyrra? Sennilegt er að margur myndlistarmaðurinn hafi einfaldlega hugsað með sér: ,,Það þýðir ekkert að sækja um!“

Árið 2005 jós úthlutunarnefnd Launasjóðsins nefnilega svo hressilega í stjórnarmenn SÍM og fólk tengt stjórninni að upp úr sauð. Mun SÍM þá hafa fengið tiltal frá menntamálaráðuneytinu og í framhaldinu lofað bót og betrun, en þó virðist SÍM ekki hafa látið sér það að kenningu verða.

Það gengur ekki lengur að Samband íslenskra myndlistarmanna sigli undir fölsku sambandsflaggi. SÍM starfar ekki sem samband ólíkra aðildarfélaga heldur sem einstaklingsfélag sem hefur sölsað undir sig umbjóðendavald yfir fjármunum frá ríki og borg.

Það fjármagn sem fer til Launasjóðs myndlistarmanna ætti að vera til skiptanna á milli myndlistarmanna í öllum aðildarfélögum SÍM. Fyrir þá sem ekki vita er Samband íslenskra myndlistarmanna samsett úr eftirtöldum sex félögum:

1. Félagi íslenskra myndlistarmanna (FÍM).

2. Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík (MHR).

3. Íslenskri Grafík (ÍG).
4. Leirlistafélaginu.
5. Textílfélaginu.
6. Hópi einstaklinga.

Það er sannfæring mín að flestir félagar í Sambandi íslenskra myndlistarmanna, hvaða aðildarfélagi SÍM þeir svo sem tilheyra, eigi rétt á að fá starfslaun án tillits til pólitískra skoðana eða klíkubandalaga. Til að svo megi verða þarf að verða gjörbreyting á vinnubrögðum sjóðsins og þar með tilnefningu manna í úthlutunarnefnd Launasjóðs myndlistarmanna.

Umsóknir myndlistarmanna verða að vera metnar á öðrum forsendum en þeim hvort þeir eru vinstri menn og/eða umhverfisverndarsinnar. Hin faglega gríma sem sett er upp til að ekki sjáist hið rétta andlit ómálefnalegrar mismununar skýlir ekki lengur dapurlegri ásjónu leppsins. Úthlutanir síðustu ára hafa afhelgað vettvanginn.

Skipta ætti Launasjóði myndlistarmanna upp milli starfsgreina innan myndlistarinnar, þ.e.a.s. til félaganna sex sem mynda og stofnuðu SÍM fyrir 20 árum. Með því væri stórlega dregið úr hættunni á að einstaklingar og jafnvel heilu kynslóðirnar yrði sniðgengnar vegna skoðana sinna og ráðandi tískuhugmynda. Myndhöggvarar fengju sitt, grafíkerar sitt, málarar sitt og nýlistin sitt. Sjálfsagt er að úthlutanir endurspegli það þróttmikla starf sem myndlistarmenn vinna og eðlilegt er að meiri breidd sé í úthlutunum. Tryggja þarf aðildarfélögum fulltrúa í úthlutunarnefnd Launasjóðs myndlistarmanna. Með reglugerðarbreytingu mætti tryggja að breiðari skipting starfslauna næði fram að ganga.

Starfslaun til myndlistarmanna má útfæra á ýmsa vegu. Meðal annars mætti koma á fót sérstökum sjóði til styrktar sýningarhópum og félögum. Slíkur sjóður gæti til dæmis úthlutað starfslaunum til myndlistarmanna sem vinna á verkstæði Íslenskrar grafíkur. Vel mætti líka hugsa sér að myndlistarmenn fengju starfslaun til að vinna myndir fyrir sýningar á vegum Grafíksafns Íslands. Þá hefðu allir hópar sem reka gallerí aðgang að sjóðnum. Athugandi væri hvort slíkur sjóður gæti ekki starfað í tengslum við Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Akureyrar. Sjóðurinn gæti einnig verið mikil vítamínsprauta fyrir listsköpun á landsbyggðinni. Það er sjálfsagt að hugsa myndlistarheiminn út frá landinu öllu á traustum grunni og þegar okkur tekst það mun okkur verða ágengt á erlendum vettvangi.

Það er sannarlega umhugsunarefni hvernig miðstjórnarvaldinu er nú beitt af hálfu stjórnar SÍM. Félögin sem mynda SÍM eru valdalaus með öllu innan sambandsins, en sambandið sækir þó áhrif og völd til þeirra. SÍM hefur barist gegn frelsi aðildarfélaga sinna á opinberum vettvangi og með því tekið afstöðu gegn frelsi einstakra aðildarfélaga sinna til að sækja rétt sinn með milliliðalausum hætti.

SÍM hefur einnig gert sig sekt um – með stuðningi frá Reykjavíkurborg – að þvinga myndlistarmenn til að vera í Sambandi íslenskra myndlistarmanna með því að gera aðild að skyldu fyrir úthlutun úr Muggi, sjóði sem Reykjavíkurborg hefur að mestu fjármagnað fyrir myndlistarmenn. Þetta þýðir í raun að ekki er lengur félagafrelsi ríkjandi, svo mikið er ofríki vinstri manna á vettvangi myndlistarinnar. Mörg fleiri orð mætti hafa um óeðlilega starfshætti SÍM en það bíður betri tíma. Hér skal aðeins nefnt að á síðustu árum hefur SÍM verið í fríu húsnæði á vegum borgarinnar á meðan Íslensk grafík hefur borgað milljónir í húsaleigu til borgarinnar, auk rafmagns og hita. SÍM
tútnar út eins og belgur en aðildarfélögin njóta ekki þeirra milljóna sem þangað renna.

Augljóst er að ekki er hægt að halda uppi samkeppni við hagsmunasamtök sem eru tryggð af ríki og borg í bak og fyrir. Þetta nær út fyrir landsteinana vegna hagsmunagæslu í stjórnum og nefndum sem hafa með samskipti myndlistarmanna að gera við myndlistartengdar stofnanir í útlöndum.

Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að ákveða í hvaða efni og með hvaða hugmyndir myndlistarmenn vinna. Slíkar ákvarðanir geta ekki verið einkamál fámenns hóps.

Í myndlist sem öðru er nauðsynlegt að tryggja frelsi einstaklingsins til athafna og koma í veg fyrir óeðlilega mismunun við aðgang hans að því opinbera fjármagni sem til skiptanna er af skattfé landsmanna til listsköpunar.

Til Endurreisnarnefndar

Frá Pjetri Stefánssyni - með góðri kveðju

Pjetur Stefánsson 27/02/2009 Kl. 13:20

 

Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700