Skilyrði vaxandi velferðar, atvinnuþáttöku og hagvextar er að íslensk fyrirtæki séu vel samkeppnishæf á innlendum og erlendum mörkuðum. Varanleg samkeppnishæfni íslenskra atvinnugreina mun til lengdar ekki ráðast af láum launakostnaði heldur hagstæðu lagaumhverfi, efnahagslegum stöðugleika og heilbrigðri samkeppnismenningu.
Forsendur samkeppnishæfni eru:
Opinn og frjáls markaður þar sem er frjáls og gjaldlaus aðgangur að útflutningsmörkuðum; hindrunalaust flæði innflutnings og frjálst flæði fjármagns, vöru, þjónustu og vinnuafls.
Stöðugt efnahagsumhverfi með stöðugum gjaldmiðli, stöðugu verðlagi, vinnumarkaði í eðlilegu jafnvægi, stöðugum ríkisfjármálum og hagstæðu og fyrirsjáanlegu skattaumhverfi.
Að auki veltur samkeppnishæfni lands á þremur meginn þáttum:
1. Samkeppnisforskoti einstakra fyrirtækja.
Fyrirtæki eru mikilvæg. Þau skapa vinnu, öryggi, velferð og efnahagslegan vöxt.
Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa góð skilyrði til að fyrirtæki verði stofnuð, vaxi og þroskist og verði samkeppnishæf. Engin ein aðgerð getur skapað Íslandi rekstrarumhverfi, sem er með því besta á heimsvísu. Það krefst margvíslegra aðgerða svo sem á sviði skóla, skatta, réttaröryggis, orku, innviða og fleira. Við viljum örva framtak, ekki síst meðal kvenna og á landsbyggðinni með menntun, ráðgjöf, einföldu regluverki, auknum rannsóknum, nýsköpunarmenningu og stuðning og aðstoð við útflutning. Skattar á rekstur fara lækkandi í heiminum svo fyrirtækjaskattar verða að vera í sífeldri endurskoðun þannig að þeir séu aldrei meira íþyngjandi en í samkeppnislöndum okkar. Við búum við allt opnari landamæri og hraðari flutninga. Tollahindranir mega ekki draga úr samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Reikna má með að með því að standa utan ES þurfi íslensk fyrirtæki að borga sem nemur 1-3% af framleiðslukostnaði fyrir landamæraeftirlit.
2. Aðgangi að sérhæfðum framleiðsluþáttum.
Almennir framleiðsluþættir eins og hráefni og ósérhæft vinnuafl eru öllum aðgengilegir og skapa því ekki varanlegt samkeppnisforskot. Sérhæfðir þættir eru skapaðir og má þar nefna þungar fjárfestingar, sérhæft starfsfólk, fjármagn sem miðlað er af þekkingu og góðir samfélagsinnviðir. Sérhæfðir framleiðsluþættir eru ekki kópieraðir af öðrum og veita varanlegt samkeppnisforskot.
Sjálfstæðirsflokkurinn vill stuðla að sköpun sérhæfðra framleiðsluþátta, sem leiða til framúrskarandi samkeppnisskilyrða fyrir íslenska framleiðslu. Þetta gerum við m.a. með því að efla menntun á sviði tækni og hönnunar, stjórnunar og raunvísinda. Með því að skapa bankakerfi, sem í krafti þekkingar getur fjármagnað framsækna framleiðslu og þjónustu og með því að byggja upp innviði t.d. í samgöngum og samskiptum, sem létta starfsemi og lækka kostnað fyrirtækja í öllum landshlutum.
3. Framtakssamfélagi sem örvar viðbragðshraða og sveigjanleika, breikkar þekkingu og skapar nýjungar.
Samkeppnishæfni þjóðar er sterkust þar sem hefur myndast samfélag fyrirtækja í líkum greinum - framleiðenda, birgja, þjónustuaðila og stofnana - þar sem ríkir bragur framtaks og innbyrðis samkeppni sem ýtir undir stöðugra aukningu á framleiðni og nýsköpun; þar sem kröfuharður markaður rekur þau til að stöðug bæta samkeppnisgetu með bættum gæðum og framþróun; þar sem myndast innbyrðis stuðningur með flæði upplýsinga, hugmynda, nýjunga og starfsfólks. Slíkt samfélag er t.d. í fiskvinnslu á Íslandi þar sem framúrskarandi árangur hefur náðst í samkeppni við aðrar þjóðir.
Sjálfstæðisflokkurinn vill stuðla að myndun slíks framtakssamfélags í fleiri atvinnugreinum með ríkisvaldi sem skapar rétt og hvetjandi þjóðfélagsskilyrði með heilbrigðu lagaumhverfi og virkum stofnunum, sem kynda undir metnaði fyrirtækja til að ná betri árangri, ýta undir innbyrðis samkeppni og takmarka samráð, stuðla að nýsköpun og framsækni, háu viðskiptasiðferði og rekstrarmenningu þar sem framtak, hagkvæmni og ráðdeild eru að leiðarljósi.
Sjálfstæðisflokkurinn vill:
• Tryggja opinn og frjálsan markað
• Tryggja stöðugt rekstrarumhverfi
• Gera stofnun og rekstur fyrirtækja einfalda
• Örva framtak ekki síst meðal kvenna og á landsbyggðinni
• Viðhalda hagkvæmu skattaumhverfi
• osfrv