ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐASAMKEPPNISHÆFNIDRÖG

1. drög - Hugleiðingar um opinbera stjórnsýslu og eftirlitsstofnanir.

Sveinbjörn Egill Björnsson, miðvikudagur, 25. febrúar 2009

- Erum við ekki öll sammála um að ríkið sé fyrir almenning, þ.e. alla þegna þessa lands?
- Við vilju hafa hér þjóðfélag sem byggir á viðhorfum þar sem við tökum tillit til náungans, veitum honum stuðning í mótlæti. Sumir kalla þetta velferðarþjóðfélag þegar Ríkið tekur að sér að byggja öryggisnet fyrir þegnana. Held að allflestir séu sammála um þetta.
- Ríkið á að sjá til að allir fái grunnmenntun.
- Ríkið á að sjá til að það sé haldið uppi lög og reglu í landinu.
- Ríkið á að sjá til þess að innviðir (infrastukur) þjóðfélagsins sé til staðar og virki sem best, sé þannig skapaður að hann hámarki þá fjármuni sem til hans eru lagðir.
- Ríkið/stjórnsýslan á að sjá til þess að atvinnulífið hafi þann jarðveg að það geti dafnað og skapað verðmæti sem þegnarnir njóti og að þar með geri mögulegt fyrir þegnana að greiða fyrir starfsemi Ríkisins/stjórnsýsluna.
- Stjórnsýslunni ber að hafa það sem markmið að haga gjörðum sínum þannig að það komi öllum til góða enda er þetta frumskilda Ríkisins.
- Þegar menn settu í stjórnarskrár hlutverk Ríkisins um miðja 19.öldina höfðu sumir áhyggjur af að Ríkið gæti orðið það umsvifamikið að það yrði í sjálfu sér marmið Stjórnsýslunnar að halda því í lífi og láta það dafna. Það aftur leiðir til þess að frelsi einstakilingsins verður takmarkað og hamli þróun er komi þegnunum til góða.
- Þegnarnir geta skipt út, þeim er bera ábyrgð á lögjafasamkominni og framkvæmdavaldinu, ef menn haga sér illa. En það er lítil viðspirna í umsvifum Ríkisins. Þar virðast þegnarnir harla ráðalausir. Þetta er umhugsunarefni, hvernig hægt er að breyta þessu? Á að setja í Stjórnarskrána að Ríkið megi ekki hafa umsvif sem nemi meira en ákveðnu hlutfalli af þjóðarframleiðslu?
- Við hljótum að vera sammála um að við viljum að umsvif Ríkisins minnki eða þeim haldið í skefjun.
- Við verðum þá að svara því hvaða verkefni Ríkið hafi á sinni könnu og hvað ekki!
- Stjórnsýslan skal hafa vinna eftir því viðhorfi, fyrst og síðast, að það er verið að þjóna þegnunum. Allir ákvarðanir, viðmót skal hafa það að leiðarljósi.
- Stjórnsýslan þarf að starfa eftir skýrum reglum, vera gagnsæ, þannig er hægt sé að hafa eftirlit með Stjórnsýslunni.
- Það hefur verið viðleitni að Ríkið innheimti fjármuni frá þegnunum eftir hinum ýmsu leiðum til að fjármagna hin ólíku verkefni, s.s. löggæslu, dómstóla, vegagerð, almannatryggingar, fangelsi, heibryggðiskerfið o.s.fr. Við gerð fjárlaga eru átök milli þeirra er bera hinna ýmsu málaflokka fyrir brjósti. T.d. getur vegagerð verið notuð sem hrossakaup við heilbryggðiskerfið. Að hafa tekjupósta bundna verkefnum mundi gera að við þegnarnir hefðum betri yfirsýn og hindraði hrossakaup milli ráðherra eða hagsmunahópa. Ef allir greiddu t.d. ákveðna % af tekjum í tryggingasjóð heilbryggðismála væri óþarfi að hafa heilbryggðismál á fjárlögum. Þá væri Ríkið heldur ekki lengur með þennan þjónustuþátt við þegnana. Ekki eru tjón á bifreiðum fjármögnuð í gegnum fjárlög!
- Hvernig er árangur stjórnsýslunar mælt? Er hægt að mæla hana?
- Barátta milli frelsis og valdsins, valdið hefur Ríkið. En það á að vera okkur þegnunum til góða en það getur snúist við og okkur ber stöðugt að gæta að okkur.
- Eftirlitsstofnanir. Flestir eru sammála um að það þurfi að hafa eftirlit með hinum ýmsu þáttum samfélagsins og er það í þágu þegnana. Þessi starfsemi þarf ekki að vera rekin af Ríkinu. Til dæmis greiða skipafélög til svokallaðra klassafélag, s.s. Veritas eða Loyds til að ganga úr skugga um að skip þeirra fullnægji kröfum hins opinbera og tryggingafélaga. En tekið skal fram að það verður að vera samkeppni á þessum sviði. Skoðun bíla var á vegum ríkisins er er nú því miður í einokun!? Ef eftirlitið er í einokun er þá ekki alveg eins gott að það sé hjá Ríkinu?!?
- Einkarekstur og opinber rekstur. Mikill misskilningur í meðal þegnanna um merkingu orðsins, einkarekstur. Viðhorf almennigs er að ef eitthvað er einkavætt er verið að taka frá þegnunum þjónustu sem var ókeypis veitt af Ríkinu og einkaðilarnir sem taki við veiti þessa þjónustu ekki ókeypis eða þá verulega skerta. Það er eiginlega óþolandi hvernig fréttamenn og pólitíkusar snúa oft út úr þessu hugtaki.
- Stór þáttur opinberar stjórnsýslu er utanríkismál. Tengsl okkar við önnur ríki. Þessi liður hefur verið gagnrýndur og má eflaust hagræða hér á þessu sviði. En það er hér eins og annarsstaðar að þegnarnir eru ekki spurðir hvað, hvað viljum við þegnarnir leggja mikið af mörkum. E.tv. væri meiri sátt um þennan málaflokk ef stjórnsýslan væri gegnsæ?
- Stjórnsýslan og fjölmiðalar. Stjórnsýslunni ber að standa vörð um tjáningarfrelsið. Það setur þá einig þá skildu á Stjórnsýsluna að vera opinn og upplýsa fjölmiðla og einnig að leiðrétta alskonar rangar upplýsingar sem eru í gangi í þjóðfélaginu. Fjölmiðlarnir þurfa að vera vel upplýstir en það er líka þeirra hlutverk að upplýsa þegnan hvað gerist í Stjórnsýslunni.
- Þegar framámenn úr atvinnulífinu eru að "fagna aukinni samkeppni" er það með broslegustu uppákomum enda er hræsnin hvergi jafn augljós. Það reyna allir að koma sér í þá aðstöðu að vera með einokun eða þá vinsamlega fákeppni. Menn leggja mikið á sig. Kaupa upp samkeppnisaðilana osfr.
- Stjórnsýslan þarf að hafa skýrar reglur um samkeppni í markaðnum til að hægt sé að hafa eftirlit með markaðnum. Það er kaldhæðnislegt að samkeppni á Íslandi hefur farið minnkandi eftir að eftirlit með samkeppni var sett á stað. Hvað segir þetta um Stjórnsýsluna? Eða okkur þegnana?
- Á Stjórnsýslan að koma að opinberum rekstri eða á þessi rekstur að heyra beint undir Alþingi?
- Þegnar landsins fá mjög misvísandi skilaboð frá stjórnamálamönnum um opinberan rekstur versus einkarekstur. Getur verið að Stjórnsýslan hafi beinlínis hag að það sé sem umfangsmestur opninber rekstur? Á opinber rekstur einhverntíma rétt á sér.
- Mikilvægt er að opinber stjórnsýsla er í þeirri aðstöðu að geta haft í sinni þjónustu þá allra færustu starfsmenn hver á sínu sviði. Það á ekki að svelta stjórnsýsluna þannig fjárhagslega að ekki sé hægt að skipa hana þeim færustu. Frekar færri en fleiri, kvalitet en ekki kvantitet.
- Kostnaðarvitund í stjórnsýslunni. Vita starfsmenn og stjórnendur hvað hlutirnir kosta, t. d á sjúkrastofnunum? Þarf ekki að breyta viðhorfum hér?
- Stjórnsýslan á ekki að hafa möguleika að fara fram úr fjárlögum. Forsvarsmenn verða að axla ábyrgð og á einhvern hátt finna fyrir þeirri ábyrgð, e.t.v. að missa starfið.
- Stjórnsýslan þarf að vera ópólitísk þannig að menn í stjórnsýslunni taki umframallt faglegar ákvarðanir eftir þeim pólitísku stefnu sem er sett upp á hverjum tíma af til þess kjörnu pólítískum fulltrúum.Forðast að inn í stjórnsýslunni sé verið að slá pólitískar keilur en ekki verið að taka faglegar ákvarðanar.
- Hefa þeir er starfa í Stjórnsýslunni pólitísk áhrif umfram aðra þegna?

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700