ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAHAGVÖXTUR FRAMTÍÐARINNARDRÖG

2. drög - Siðferði í viðskiptum, Elías Pétursson

Elías Pétursson, þriðjudagur, 3. mars 2009

Siðferði í viðskiptum.

Elías Pétursson

Undanfarin ár hefur oft og víða verið rætt um siðferði í viðskiptum, einkum virðast menn hafa viljað meina að umræddu siðferði hafi hrakað. Örugglega má að einhverju leyti  til sanns vegar færa að brestur hafi orðið í siðferði eins og mörgu öðru á þeim tímum sem nú er að ljúka. Brestur sá er kannski mestur í því að menn í viðskiptalífi og víðar töldu sig í raun geta lifað utan við samfélagið og sett sér leikreglur á eigin forsendum og á ímynduðu plani þess viðskiptamódels sem þeir höfðu búið til.  Sást þessu stað í mörgu svo sem óhóflegum launagreiðslum, ábyrgðarleysi í skuldsetningu, og ábyrgðarlausri umgengni við frelsi það sem veitt var á undanförnum tæpum tuttugu árum.

Viðskiptasiðferði er margþætt og nær um öll svið viðskipta og mannlífs, enda hefur gott viðskiptasiðferði verið talið til helstu dyggða um aldir og undirstaða velmegunar jafnt sem samskipta.  Viðskiptasiðferði er nátengt hlutum eins og samfélagslegri ábyrgð og framkomu fyrirtækja jafnt sem stjórnenda, enda eru fyrirtæki, eigendur  og stjórnendur þeirra dæmdir af orðspori sínu. Orðspori sem verður til af framkomu og ábyrgri hegðun þar sem hagur allra er hafður að leiðarljósi.

Eins og áður sagði má heimfæra viðskiptasiðferði á flesta þætti mannlífs en gróft mætti hugsa sér að skipta því á eftirfarandi svið.

ü  Einstaklingssiðferði.

Ø  Forsenda árangurs þegar til lengdar er litið er ekki að læra „trikk“ eða verða fær í viðskiptalegum „loftfimleikum“  heldur að vera dyggðugur. Þetta á ekki síst við um þá sem sinna ábyrgðarstörfum. Heiðarleg og ábyrg persóna nær lengra í viðskiptum þegar til lengdar lætur en persóna sem ekki er hægt að treysta.

Ø  Traust þarf að ríkja í samskiptum þeirra sem eiga viðskipti sín á milli. Traust byggist á því að þeir sem ástunda viðskipti séu dyggðugir, heiðarlegir  og trúverðugir í framkomu og æði.

Ø  Gott siðferði er því ein af megin forsendum raunverulegs og varanlegs árangurs í viðskiptum.

Ø  Oft má einnig mæla siðferði stjórnenda á gegnsæi ákvarðana þeirra, áhættusækni og fjárhagslegri ábyrgð í ákvörðunum.

ü  Fyrirtækjasiðferði.

Ø  Vettvangur viðskiptasiðferðis fyrirtækja byggist  á sömu forsendum og nefndar eru hér að framan, enda er fyrirtækið í raun ekkert nema stjórnendur þess og starfsmenn.

Ø  Fyrirtæki eru mörg í krafti stærðar sinnar orðin mjög valda- og áhrifamikil í samfélaginu og bera þau því samfélagslega ábyrgð. Þetta á um margt einnig við um minni fyrirtæki þó ábyrgð þeirra snúi oft meira að nærsamfélaginu svo sem bæjarfélagi og starfsmönnum.

Ø  Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja og stjórnenda nær einnig til þess að krafan um „hámörkun“ arðs leiði ekki til þess að öllum meðulum sé beitt, slík hegðan hlýtur að hafa áhrif á fleiri en þá sem hagnast. Margir hafa hagsmuni af góðum og ábyrgum rekstri fyrirtækja t.d. starfsmenn, hluthafar, umhverfi o.f.l, því þarf að horfa til hagsmuna allra við rekstur.

Ø  Siðferði fyrirtækja er líka mælt á mælikvarða gegnsæis og trúverðugleika þeirrar fjárhagslegu áhættu sem stjórnendur þeirra taka.

Ekki er hér um tæmandi lista að ræða en af honum má þó vera ljóst að viðskiptasiðferði er víðtækt og mikilvægt hugtak hvort sem er í almennum samskiptum  eða rekstri.

                Í rekstri fyrirtækja er einnig mikilvægt að eitt enn siðferðishugtak sé uppá borðum, það mætti kalla stofnanasiðferði, og er sú framkoma sem opinberir aðilar og stofnanir sýna af sér. Þetta fellst í sanngjörnu og gagnsæju regluverki, fortakslausri og algjörri framfylgni reglna án allrar mismununar.

Regluverk er algjörlega nauðsynlegt því margsannað er að þrátt fyrir siðferði þá er náttúran og breyskleiki mannanna samur við sig, þar sem menn sjá tækifæri til að hagnast á óheiðarlegan hátt án þess að upp um þá komist þá verða alltaf einhverjir til þess, þrátt fyrir allar siðareglur.

Því er ætíð og alltaf þörf á skilvirku eftirliti hins opinbera og framfylgni reglna.

Einnig er undir þessu krafan um ábyrga stjórnmálamenn sem setja leikreglur þjóðfélagsins, leikreglur sem þurfa að vera eins einfaldar og auðframfylgjanlegar og kostur er, og án þess að gefa færi á misnotkun og túlkunum. Einnig er undir þessu framkoma yfirvalda og fulltrúa þeirra við fyrirtækin og erum við þá aftur komin að einstaklingssiðferði sem sýnir hve samtvinnað og víðtækt siðferðishugtakið  er.

Ef brestur verður á einu sviði siðferðis smitar það um allt og við töpum því samfélagi sem flest okkar erum sammála að gott sé að búa í og starfa.

Það borgar sig ætíð að breyta rétt! Einar verðmætustu eignir hvers stjórnanda er það mannorð og orðspor það sem af honum fer. Siðferðislegur sjálfsagi er mjög mikilvægur í rekstri sem og samskiptum og augljós er hagur fyrirtækisins og eigenda þess af góðum viðskiptaháttum. Það hlýtur að vera betra að leita þess góða og siðferðislega rétta, en láta draga sig tilneyddan af regluvörðum um hinn góða veg dyggðanna.

Fyrirtækjum sem þekkt eru fyrir gott siðferði helst betur á viðskiptavinum en öðrum, en öflun nýrra viðskiptavina er kostnaðarsöm. Fyrirtæki sem gera sér grein fyrir ábyrgð sinni til starfsmanna og samfélags uppskera betri starfsmenn og samfélag.

Fyrirtæki eru ekki bara Excel-skjal á skjá eða kennitala á blaði, þau eru samfélag fólks af holdi og blóði hluti heildar þar sem hvorugt getur án hins verið. Þó svo að einhver telji kannski að góð siðferðisgildi geti til skamms tíma verið hamlandi á arðsemi, þá skapa þau traust þegar lengra er litið.

Gott orðspor, traust og óflekkað mannorð er verðmætasta eign hvers manns, því á erfiðum tímum kemur ekkert í stað trausts.

Sama á að sjálfsögðu við um fyrirtæki.

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700