ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAHAGVÖXTUR FRAMTÍÐARINNARDRÖG

2. drög - Hvað á að gera - Hvað skal varast

þriðjudagur, 3. mars 2009

Hvað á að gera og hvað skal varast

Punktar nefndarinnar

Það sem þarf að gera.......

1.       Ríkisstjórnin geri strax tímasetta áætlun þar sem tilgreindar eru aðgerðir til endurreisnar, flokkaðar eftir mikilvægi, árangursvon og framkvæmanleika, um leið og áætlunin liggur fyrir verði henni fylgt út í æsar og jafnvel sett í lög.

2.       Ríkisstjórnin geri í framhaldi tímasetta langtíma aðgerðaskrá til þriggja ára, þar sem kostnaður og tekjur eru skilgreindar, umrædd áætlun verði leidd í lög.

3.       Heimilum verið boðið upp á kúlulán til 2012 þar sem óviðráðanlegar skuldir verið settar inn verðbætt en með lágmarks vöxtum.

4.       Ríkisstjórnin þarf að skýra aðkomu sína að stjórnun bankanna, og undirbyggja þátttöku þeirra í uppbyggingarstarfi.

5.       Skattkerfi verði breytt þannig að hvatning aukist til rannsókna og nýsköpunar innan núverandi atvinnulífs.

6.       Skattkerfinu verð breytt þannig að tekjutenging innan kerfisins verði aukin.

7.       Það þarf að endurreisa verðbréfamarkaði hérlendis, með endurskoðun reglna og tímabundinni skattameðgjöf.

8.       Ríkisstjórnin efli samráð og auki markvisst samstarf við lífeyrissjóði landsins um fjárfestingar og uppbyggingu.

9.       Ríkisstjórnin þarf að fara af stað með endurskoðun á skiptingu verkefna og tekjuskiptingu  við sveitarfélög.

10.   Það þarf að endurheimta traust landsins með markvissum samtölum og greinarskrifum erlendis sem innanlands.

Það sem þarf að varast er.......

  1. Skort á upplýsingum og gegnsæi.

2.       Lausatök á stjórn og aðgerðum ríkisstjórnar.

3.       Aðgerðir sem fresta vanda fólks án þess að skilgreint sé hvað taki við að lokinni frestun.

4.       Aðgerðir sem eru settar í gang til vinsældaveiða og skamms tíma.

5.       Aðgerðir án skilgreinds kostnaðar, takmarks og árangurs.

6.       Misræmi í aðgerðum, t.d. ríkisstjórnin mælist til slaka í innheimtu en stofnanir og bankar keyra innheimtu af hörku.

7.       Klíkuskap og spillingu við endurúthlutun þeirra gríðarlegu eigna og gæða sem ríkið situr nú uppi með.

8.       Tilgangslaust orðagjálfur sem hlaðið er „stefnt skal að“ og öðru þessháttar bulli.

9.       Misvísandi yfirlýsingar embættismanna og ráðamanna, samræming þarf að vera fyrir hendi.

10.   Hroki gagnvart þegnunum í samræðum, upplýsingagjöf og aðgerðum.

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700