ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAHAGVÖXTUR FRAMTÍÐARINNARDRÖG

2. drög - Gildismat og grundvallaratriði, Björn Vernharðsson

þriðjudagur, 3. mars 2009

Gildismat og grundvallaratriði

Björn Vernharðsson

Grundvallarsjónarmið Sjálfstæðisflokksins er að einstaklingar hafi frelsi til að velja og þá fyrst sýni þeir ábyrgð, sem er nauðsynleg forsenda til þess að traust myndist. Þegar traustið er gott að þá skapast hvöt og vilji til verka á meðal fólks og siðferðið styrkist. Einstaklingar, fyrirtæki og stjórnsýsla verða þá fyrst hagsýn og sýna ábyrgan rekstur. Sýn okkar á framtíðina og væntingar verða skýrari og framkvæmanleg.

Vilji er forsenda breytinga því endurtekningin gefur alltaf sömu útkomu. Að viðurkenna erfiðleika framundan og takast á við þá fyrr en síðar, er að sýna ábyrgð. Að fegra mögulega afkomu og falsa eigin stöðu er ábyrgðarleysi. Að telja að góð frammistaða sé auðveldlega endurtekin er þekkt hugvilla. Sömuleiðis að telja að viðkomandi standi sig betur en aðrir og ekki síst að fylgja hjátrú og sjálfsupphöfnum spádómum fremur en staðreyndum. Einstaklingseðlið sækist í að ná valdi yfir öðrum sér í hag. Mannleg hegðun stangast oft við það að sýna hagsýni, taka ábyrgð, sýna   gott siðferði og getur verið lögbrot. Af viljalausum vana látum við siðleysið yfir okkur ganga og horfum fram hjá staðreyndum um mannlegan breyskleika.

Hegðun sem á rætur að rekja í mannlega bresti á það til að magnast upp í hópum hvort sem það er innan fyrirtækja, stofnana og víðar í samfélaginu. Í krafti valds er gengið á rétt einstaklinga með einangrun, valdboði eða fákeppni. Einstaklingar í íþyngjandi aðstæðum eiga erfitt með að standa á sínu, leita réttar síns eða að fá aðstoð. Það er samfélagsleg skylda og hefur alltaf verið meginstoð í stefnu Sjálfstæðisflokksins að styðja einstaklinga í erfiðleikum. Alla slík aðstoð þarf að veita faglega og með skipulögðum hætti, með velferð og hagsmunir þegnanna að markmiði. Ábyrg stjórnsýsla tekst á við óábyrga hegðun og siðferðisbresti. Stofnanir og fyrirtæki verða að hafa skýrar reglur sem taka á óábyrgri og siðlausri hegðun og um leið skýrar og almennar reglur um samskipti. Stjórnsýslan má ekki missa yfirsýn og taka óábyrga afstöðu með afstöðuleysi.

Fjármálalífið byggir í verulegum mæli á huglægum fjármálagjörningum. Fjármálafyrirtæki byggja á trausti og þess vegna verða þau að sýna þess meiri ábyrgð í rekstri. Ábyrg stjórnsýsla setur regluverk og hefur eftirlit með því hvort að fjármálakerfið geti fellt raunhagkerfið, lýðveldið og sjálfstæði þjóðarinnar vegna óábyrgrar hegðunar. Það er misskilningur að setja samhengi á milli frelsis Sjálfstæðisstefnunnar um að fá að starfa í skapandi umhverfi, þar sem ekki er verið að leggja stein í götu fólks með íþyngjandi eða heftandi stjórnsýslu og heimspekilegra kenninga um að frelsi sé að leyfa allt. Stefna Sjálfstæðismanna er að taka með skýrum og afgerandi hætti á ábyrgðarleysi. Ábyrg stjórnun gefur raunverulega valkosti, en ekki valdboð og fákeppni. 

Ábyrg hegðun einstaklings er að taka ekki að sér hlutverk hins óvirka í hóp og þannig styðja óeðlilega, ósiðlega og óábyrga framkomu. Það verður alltaf að vera til farvegur til þess að takast á við hið óábyrga í samfélaginu, en það er einstaklingnum ofrausn að gera það á eigin spýtur. Það er jafnvel erfitt fyrir þá aðila, sem er ætlað það hlutverk. Það er nauðsynlegt að taka fast á siðleysi og fara eftir vel skilgreindum ferlum, því það flýtir fyrir því að tekið sé á málum og dregur úr líkum á því að slík hegðun valdi skaða. Það þarf að vera til farvegur sem leggur grunn að sátt á milli aðila og stendur fyrir eðlilegu siðferði í samfélaginu. Sjálfstæðismenn eru í fararbroddi í að skapa sátt og samstöðu á milli stétta, með áherslu á ábyrga framkomu sem skapar traust og gott siðferði í samskiptum, en eltast ekki við sérhagsmuni.

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700