ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAHAGVÖXTUR FRAMTÍÐARINNARDRÖG

2. drög - Framtak, Sigríður Finsen

Sigríður Finsen, mánudagur, 2. mars 2009

Framtak

Sigríður Finsen 

Inngangur

Framtak  og áræðni er nauðsynleg fyrir áframhaldandi þróun efnahagslífsins og samfélagsins.   Stöðug leit að nýjum tækifærum í fjárfestingum og rekstri er uppspretta vaxtar í hagkerfinu og ein meginástæða þessu hversu fjölbreytt og síbreytileg frjáls samfélög eru. Andstæða þess er  framtaksleysi, sem leiðir til stöðnunar og svo hnignunar. Við núverandi aðstæður sem er ennþá að sýna  merki samdráttar eftir hrun bankakerfisins, þarf að ýta undir og styðja við framtak einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka.

 

Málið reifað  - staðan tekin út. 

Á síðastliðnu ári fór að hægja á efnahagslífinu eftir mikla uppsveiflu undanfarinna ára og ágerðist þessi þróun mjög hratt eftir hrun bankanna í október 2008. Atvinnuleysi hefur aukist mjög, í febrúar 2009 voru tæplega 16 þús manns á atvinnuleysisskrá, eftirspurn hefur minnkað, þá ekki síst eftir dýrari innfluttum vörum.  Viðskiptabankarnir hafa ekki náð þeirri stöðu að geta lánað viðskiptavinum sínum,  sem hægir meira á hjólum efnahagslífsins.  Miklar breytingar á gengi íslensku krónunnar hafa kippt  rekstrargrundvelli undan ýmissi atvinnustarfsemi en um leið hafa myndast ný sóknartæki sem sem þarf að nýta.

 

Við þessar óvissu aðstæður er hætta á að þessi þróun haldi áfram niður á við.  Neytendur þora ekki að eyða peningum sínum, t.d. af ótta við að missa vinnuna og/eða bíða eftir því að verð fari að lækka. Eftir mjög áhættusækið tímabil má einnig búast við að vilji til að taka áhættu með sitt fjármagn minnki

   

Stofnun nýrra fyrirtækja, þróun  nýrra leiða og aðferða sem gerir framkvæmdir  einfaldari og/eða  betri hátt hefur sett sín spor á íslenskt samfélag  á undanförnum árum.  Íslendingar  hafa almennt verið fljótir  að taka upp og innleiða nýja tækni s.s. í tölvu- og fjarskiptaheiminum.   Það er styrkleiki fólginn í þessum eiginleikum sem mikilvægt er að varðveita.

 

Umgjörð samfélagsins þarf að styðja við og umbuna framtakssemi.  Greining nýrra viðskiptatækifæra, vilji til að taka áhættu þarf að skila ábata. Eftir mikið óhóf og græðgi á undanförnum misserum er hætt við að samfélagið hafi minni skilning á nauðsyn þess að fjárfestar þurfi að fá sitt framlag metið. 

 

 

Helstu markmið – stefnumið

 

Það er nauðsynlegt að brjóta upp og stöðva þennan spíral.  Það þarf að hlúa að og styðja við framtak og áræðni einstaklinga og fyrirtækja með því að endurreisa hina efnahagslegu umgjörð, með hvötum til framtaks einstaklinga og fyrirtækja.

 

 

Tækifæri – takmarkanir

Fjölmörg ný tækifæri til sóknar munu gefast þegar endurreisnin hefst á ný, sem þarf að nýta með fagmennsku og metnað að leiðarljósi.  Fjármagn þarf að nýta með skynsömum og aðhaldssömum hætti.

  

Hvað á að gera? Hvers ber að gæta? Áhersluatriði.

Það þarf að byggja upp og styðja við getu, traust og áræðni til fjárfestinga,

Bankarnir þurfa að geta lánað til nýrra verkefna,

Vextir þurfa að lækka,  

Hvetja þarf einstaklinga til að sinna viðhaldi og endurbótum fasteigna sinna,  

Hvetja þarf einstaklinga til að eyða peningum sínum,

Skatta- og reglugerðarumhverfið þarf að hvetja en má ekki letja og gefa einstaklingum tækifæri til að meta ávinning af sínu framtaki.

Það þarf að tala kjark í þjóðina.

 

 

           

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700