ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAATVINNULÍF OG FJÖLSKYLDURHUGMYNDIR

Hugmyndir

Það er kannski of seint að koma hugmyndum sínum á framfæri hér þar sem skýrsla nefndarinnar hefur nú þegar verið unnin en ég læt samt vaða.

Skv. bráðabirgðaniðurstöðum skýrslu Seðlabankans sem var kynnt 11. mars þá lítur út fyrir að sá fjöldi heimila sem er í miklum vandræðum með greiðslu af húsnæðislánum sé ekki eins mikill og umræða undanfarinna mánuða hefur gefið til kynna.

Ég er afar hrædd um að eitthvað af þeim ákvörðunum sem nú þegar hafa verið teknar til aðstoðar heimilinum í landinu hafi verið of víðtækar og verið að hjálpa fjölskyldum sem þurfa ekki nauðsynlega á því að halda.

Mér finnst að fyrir næstu kosningar þurfi fulltrúar Sjálfstæðismanna að finna leiðir til þess að auðkenna þær fjölskyldur sem hafa virkilega farið illa út úr þessum efnahagshremmingum og hjálpa einungis þeim.

Það væri hægt að spara talsverða fjármuni með þessu sem ætti að vera hagur allra landsmanna þegar horft er fram á veginn til nokkurra ára.

Einnig finnst mér að það ætti að skoða aðstoð við þessar fjölskyldur þannig að hægt væri að greiða fyrir tómstunda/íþrótta iðkun barna, greiða fyrir mat í skólum og fleira í þessum dúr en ekki horfa of mikið til þess að fella niður hluta húsnæðislána.

Ég hef fulla trú á því að við getum komist í gegnum þetta erfiða tímabil á ekki svo löngum tíma ef vandað er til verka.

Ella María Gunnarsdóttir 14/03/2009 Kl. 10:43

Ég skil ekki hugmyndir um að lofa fólki að taka út af frjálsum sparnaði sínum. Hugmyndafræðin gengur út frá því að meðal eign sé t.d. 3 milljónir. Óvíst er hvað mikið yrði tekið út, t.d. 100 milljarðar. Skattfé af því yrði um 33 milljarðar ! Flott, en bíðið við, stór hluti þess rynni til sveitafélagana. Útborgun 3 árum, svo þetta yrði svona 7 milljarðar í ríkissjóð á ári.
Þeir sem eru sammála þessu eru þar með að segja að bankarnir munu EKKI rísa upp næstu 3 ár ! Væri ekki skynsamlegra að reisa bankana við og þeir lánuðu fólkinu svona upphæðir, (er um 670 þús á ári eftir skatt) og lögum yrði breytt þannig að þeir verst settu mættu veðsetja inneign sína í sjóðunum ? Svo minnist enginn á það hvort sjóðirnir þoli svona "run" á þá með ófyrirsjáanlegu tapi fyrir þá sem enn ættu peninga þarna inni.
Ergo: Snælduvitlaus tillaga hér á ferð.

Örn Johnson 05/03/2009 Kl. 17:15

Góðan dag,

Ég er fædd sjálfstæðismaður (kona) og hef alltaf kosið flokkinn og er "ennþá" flokksbundin en mér finnst bara alls ekki koma neitt tromp frá ykkur því miður.
Sjálf hef ég alla tíð verið dugleg að sjá um mig og mína og hef verið á vinnumarkaðnum í yfir 20 ár og meira að segja fór ég í HR og lauk þaðan viðskiptafræðinámi í janúar 2008 og fékk þessa fínu vinnu tengdu því í sama mánuði. Þann 1. nóvember s.l. var mér sagt upp störfum eins og mörgum mörgum öðrum og er þ.a.l. atvinnulaus núna og það finnst mér miður vegna þess að það var heilmikið að leggja á sig að fara í skóla aftur og það háskóla með stórt heimili, taka námslán og þurfa að lifa spart til að allt gengi upp og svo var fótunum bara kippt undan manni.

Það sem ég vil sjá frá ykkur eru hugmyndir um hvernig þið ætlið að láta hjól atvinnulífsins fara að snúast aftur, það hlýtur að vera til lausn en það er ykkar að finna hana finnst mér og ef þið komið með einhverja sniðuga hugmynd þá mun ég án ef kjósa ykkur. Ég veit að svona hugsa margir sérstaklega þeir sem eru í minni stöðu.
Mér finnst EKKI rétt að ætla að afskrifa skuldir og fleira hjá fólki, þetta er eitthvað sem maður kemur sér í sjálfur, það þarf ekki að vera á 10milljón króna bíl eða í allt of stóru húsi, hins vegar má lækka vexti og koma genginu í ásættanlegt horf en það er eitthvað sem kemur vonandi með tímanum.

Varð bara að fá að tjá mig og vona að þið reynið að hugsa um þetta, þannig fáið þið líka fleiri atkvæði.
Mbk
Hafdís

Hafdís Svavarsdóttir 05/03/2009 Kl. 16:28

Ég hef ekkert heyrt neitt varðandi byggingariðnaðinn hvernig væri hægt að koma
honum í gang aftur. Ég nefni að viðhaldsverkefni
eru gífurleg og það væri hægt með smá lánveitingum t.d. frá húsnæðistofnun að framkalla gríðalega mikla vinnu með þessu móti. Atvinnulausir gætu dittað að húseignum
sínum og fólk hefur betra aðgengi að iðnaðarmönnum. Þetta er einmitt vinnu vettvangur fjölda nemanda á sumrin. Koma svo
kippa þessu í liðinn svo þetta verði klárt fyrir vorið. Kv Marten Ingi Lövdahl Byggingarmeistari

Marten Ingi Lövdahl 23/02/2009 Kl. 19:50

Í þessu mikla atvinnuleysi sem nú herjar á okkur er mikilvægt að missa ekki þá atvinnulausu í einhvern bölmóð. Einnig er mikilvægt að nýta krafta þessa fólks þó að það hafi ekki vinnu. Mín hugmynd er einföld: Atvinnuleysisbætur verði aflagðar, í stað þeirra komi greiðslur fyrir einhverskonar framtak. Það má vera sjálfboðaliðastarf í einhverjum samtökum, vinna að viðskiptahugmyndum með t,d, Impru. Það skiptir í raun ekki verulegu máli hvert verkefnið er, heldur að það sé skipulagt starf sem fram fer þannig að það komi einhverskonar framlega frá þeim atvinnulausa fyrir bæturnar. Ef þið viljið fá nánari útfærslu á þessari hugmynd er alveg óhætt að hafa samband í síma 8648946

Björn Líndal Traustason 23/02/2009 Kl. 18:48

Ég spyr mig oft að þvi hvort ekki sé hægt að opna fyrir veiðar á grunnsvæði, þá á ég við veiðar innan 5 mílna markar, þar sem menn geta veitt og selt afla. Tel að hægt sé að skapa mörg störf. Veiðileyfi yrðu seld til eins árs í senn en þak sett á afla, bátarnir sem fengu leyfi mættu ekki vera yfir einhverri ákveðnni stærð og hestaflafjölda.

Kári Kárason 23/02/2009 Kl. 13:07

 

Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700