ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAATVINNULÍF OG FJÖLSKYLDURDRÖG

2. drög - Atvinnuleysi og orka

Margrét Björnsdóttir, þriðjudagur, 10. mars 2009

Atvinnulausir eru nú yfir 14 þúsund á landinu öllu.  Flestir atvinnulausra búa á höfuðborgarsvæðinu eða um níu þúsund og næst flestir á Suðurnesjum eða um sextán hundruð.  Margir eru atvinnulausir á Norðurlandi eystra en fæstir á Vestfjörðum eða innan við eitt hundrað manns.  Atvinnuleysi er í flestöllum greinum atvinnulífsins, misjafnt er þó eftir atvinnugreinum hve atvinnuleysið er mikið.  Atvinnulausir hafa fjölbreytta og ólíka menntun svo og bakgrunn.
Þarna er stór auðlind sem þarf að virkja sem allra fyrst, ekki má þjóðin við því að missa mikið að hæfu og vel menntuðu fólki úr landinu.

Uppbygging - lausnir - aðgerðir

Þjóðin stendur nú frammi fyrir erfiðum þáttaskilum og risavaxin verkefni eru framundan.  Þess vegna gefst núna svigrúm fyrir tækifæri og fyrir hugarfarsbreytingu og einmitt þá er andrúm fyrir nýja hugsun og sköpun.  Vegna óvissuástandsins í atvinnumálum verður því að leggja áherslu á að komast í gang með nýjar hugmyndir.  Ekki er nóg að tala endalaust um viðskiptahugmyndir ef ekkert stendur á bak við það tal, það verður að koma alveg nýrri hugsun í gang til að fjölga atvinnutækifærum hér á landi fyrir framtíðina, með bjartsýni og áhuga og markmið um árangur og uppbyggingu að leiðarljósi.

Á þrengingartímum sem þessum leysist úr læðingi hröð þróun á nýrri tækni ólíkt því sem gerist á allsnægtartímun en þá verður þróun á þessum sviðum meira hægfara.  Þarna sannast hin sígildu orð um að neyðin kenni naktri konu að spinna.  Áherslan þarf m.a. að vera á að þróa hugmyndir sem ná til þeirra auðlinda sem til staðar eru í landinu með nýrri tækni.

Hugmynd að nýrri tækni - útflutningur á raforku

Hugmynd mín er að leiða saman teymi.  Annars vegar prófessora og kennara í verkfræði, tölvunarfræði, tæknifræði, rafmagnsfræði o.fl. greina og nemenur þeirra (einu nafni fræðimenn).  Hins vegar iðnaðarmenn, rannsóknarfyrirtæki á tækni- og verkfræðisviði o.fl. (fulltrúa atvinnulífsins).  Framkalla “spin-off” áhrif.  Með því að koma þessum hópi fólks saman og útvega þeim rannsóknaraðstöðu er hægt að þróa nýja tækni til þess að finna út hvernig við getum flutt út raforku.  Allir njóta góðs af samvinnunni, iðnaðarmenn, rannsóknaraðilar, stjórnmálamenn o.fl.  Svona teymisvinna er notuð víða erlendis til að þróa nýja tækni á skömmum tíma.

Á Lálandi í Danmörku hefur einmitt svona teymisvinna verið notuð til þróunar á vetni, þörungaframleiðslu og rafmagnsframleiðslu frá vindmyllum.  Í bænum Vestenskov er verið að gera tilraun með vetnisþorp með nýtingu orkunnar frá vindmyllum í nágrenninu.  Vindmyllurnar framleiða rafmagn fyrir fyrirtæki og stofnanir á daginn en fyrir þorpið að næturlagi.  Næturframleiðslu vindmyllanna er breytt í vetni sem nýtist tilraunaþorpinu með sérbúnaði í hverju húsi sem breytir vetni aftur í rafmagn.

Áætlað er að að öll húsin í þorpinu verði tengd þessari tilraun á þessu ári (2009) og við það sparist 1 tonn af CO2 / íbúa.  Vetnið er notað til að geyma raforkuna sem síðan er aftur breytt í raforku.  Vandamálið er að geyma vetnið vegna sprengihættu. ”Triple Helix” er eitt þeirra verkefna sem sett var þar í gang, en það er samvinna á milli háskóla og einkafyrirtækja.  Teymisvinnan skapar bæði nýja og betri tækni og mörg atvinnutækifæri á ótrúlega skömmum tíma.

Útflutningur á rafmagni

Vissulega erum við að flytja út rafmagn í formi áls og einnig er talað um orkufrekan tölvuiðnað sem geymir gögn víðs vegar að úr heiminum.  Það stendur alveg fyrir sínu.  Hægt er að nýta og geyma raforku með ýmsum hætti og flytja út.  Ein áhugaverðasta hugmyndin sem komið hefur fram er að vinna eldsneyti (metanól) með rafmagni og útblæstri álvera.  Slíku eldsneyti má brenna í bensínvélum, það er auðvelt í flutningi og endurheimtir að auki dýrmætan útblásturskvóta.  Vandamálið við vetni er enn að nýting þess er ekki langt komin og flutningur þess er tæknilega erfiður.  Framtíðin kann að vera rafstrengir á milli landa en sú tækni sem til er í dag býður ekki upp á raunhæfan orkuflutning í strengjum vegna gífurlegs orkutaps á leiðinni.

Trúin flytur fjöll

Ég hef mikla trú á teymisvinnu fræðimanna og tæknimanna og með því að leggja þeim til rannsóknaraðstöðu verði hægt að þróa nýja tækni til þess að finna út hvernig við getum flutt út orku.  Allir munu njóta góðs af samvinnunni.

Olía sem orkugjafi verður hallærisleg eftir nokkur ár vegna mengunar sem hún skilur eftir sig í andrúmsloftinu.  Olíuvinnsla á Drekasvæðinu er fjarlægur og fjárfrekur draumur.  Ísland á að vinna skiplulega að hvers konar hreinni og endurnýjanlegri orku og að verða leiðandi á því sviði í veröldinni.

“Best solution can be enemy with good solution”, það á ekki alltaf að bíða eftir að besta tæknin verði fundin upp - það verður alltaf þróun í tækninni.   Þess vegna eigum við að nota þá tækni í dag sem er góð og grípa gæsina núna og síðan er hægt að þróa tæknina áfram.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700