ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAATVINNULÍF OG FJÖLSKYLDURDRÖG

2. drög - Hagsýn heimili

Áslaug Friðriksdóttir, mánudagur, 9. mars 2009

Heimili á Íslandi sjá fram á erfiða tíma.  Eignir hafa tapast, tekjur minnkað og svigrúm fjölskyldna til að bregðast við þrengst verulega.  Mikilvægt er að hið opinbera bregðist við með aðgerðum til úrbóta.  Horfa þarf jafnt til skammtíma og langtíma skulda.  Koma verður til móts við fjölskyldur um endurgreiðslu lána, greiðslu opinberra gjalda og gefa fólki svigrúm til að bæta hag heimilanna án þess að komast í þrot.

 

Huga þarf að því hvernig verðtrygging, gengi, vextir, endurgreiðslutími og endur-fjármögnun lána mætir heimilum sem þurfa að aðlagast gjörbreyttu efnahagsástandi.  Hér gildir að hafa samninga sem sveigjanlegasta, án þess að viðhalda ástandi sem sýnt er að ekki muni leiða til betri stöðu þegar horft er til lengri tíma.

 

Tækifæri

Lykilatriði er að fjölskyldur taki upp nýtt gildismat og sjái eigin þátt í því hvernig bæta megi hag þjóðarinnar.  Eitt af einkennum samfélags í þennslu er skortur á tíma til að sinna heimilum og fjölskyldu.  Í stað fjármagns er nú til staðar annar miðill – tími.  Aukinn tími aflögu felur í sér tækifæri til að bæta lífsgæði fjölskyldna og einstaklinga, s.s. að fjölga samverustundum  með fjölskyldu og vinum, sinna heimili og öðrum hugðarefnum betur en áður.  Mikið tækifæri liggur í því að byggja upp enn fjölskylduvænna og mannvænlegra þjóðfélag með breyttu lífsmynstri fjölskyldna og einstaklinga.

 

Neyslumynstur heimila þarf að breytast samhliða breyttum aðstæðum.  Slíkt getur haft jákvæð áhrif. Skortur leiðir venjulega til þess að þörfinni er svarað með óhefðbundnum leiðum, séu hinar hefðbundnari ekki færar.  Endurskoða þarf hvernig verðmæti eru nýtt, horfa þarf til þess hvernig nota má hluti/efni á annan hátt en áður, til hagræðingar.  Sjá má fyrir sér að nýjar leiðir stuðli að nýsköpun innan heimila sem utan og leiði til aukinnar sjálfbærni.  Á stóra rófinu má sjá fyrir sér að slíkt geti haft bein jákvæð áhrif á efnahagsmálin.

 

Ábyrgð í fjármálum þarf að aukast.  Heimilum ætti að bjóðast ráðgjöf í fjármálum til að auðvelda þeim að taka upp nýja lífshætti.  Heimilin hafa verið háð lausafjármagni en hafa síður lagt áherslu á að safna í sjóði, þessu er nauðsynlegt að snúa við. 

 

Heimilin í landinu þurf að vera virk.  Mikilvægt er að atvinnulausir taki þátt í atvinnulífinu eins og aðrir.  Stjórnvöld þurfa að stuðla að því að fólk taki þátt í uppbyggingu og verkefnum sem hentar hverjum og einum.  Mikilvægt er að einstaklingsfrelsið fái að ráða því hvaða verkefni hver tekur sér fyrir hendur og helst að fólk hafi frumkvæði að því hvar þeirra framlag skilar sér best.  Virkja þarf einstaklingsframtakið í þágu þjóðarinnar.  Leita þarf leiða til að virkja ungt fólk og finna þeim verkefni við hæfi svo það flytji ekki úr landi.

 

Einn af stóru póstunum í rekstri heimila, fyrir utan húsnæði, er rekstur bifreiða.  Mikilvægt er að hér skapist raunverulegt val heimila um að nýta almennings-samgöngur í stað þess að reka einkabíl.  Einkabílavæðinging er byrjuð að ganga til baka og koma þarf til móts við þá þörf sem myndast því samfara.  Barnafjölskyldur eru í sérstakri þörf þar sem tómstundaiðkun fer oft fram í sérskólum eða félögum utan skólanna.  Skoða ætti fjölbreyttar leiðir til að mæta þörfum fjölskyldna hvað þetta varðar.

 

Fjölbreytt og aðgengilegt menningarlíf eykur lífsgæði.  Tryggja þarf framboð menningartengdrar starfsemi.  Benda þarf fólki á leiðir sem í boði eru bæði í formi þjónustu og þátttöku.  Öflugt menningarlíf leiðir til aukinnar samkenndar, tengir við uppruna, einkenna og krafta sem í þjóðfélaginu búa og veitir fólki innblástur. 

 

Ógnanir

Mikil ógn steðjar að heimilum ef óskýr framtíðarsýn í efnahagsmálum verður viðvarandi.  Heimili þurfa mörg hver að fara í gegnum miklar breytingar og sama krafa verður gerð til stjórnvalda og stjórnmálamanna.  Aðrar ógnanir:

 

·         Langtímaatvinnuleysi, greiðsluerfiðleikar/þrot og erfiðleikar á heimilum fylgjast gjarnan að.  Slíkt ástand leiðir af sér viðvarandi aðgerðaleysi og stöðnun, fátækt er ekki langt undan.

·         Breytingar á aðstæðum heimilanna til hins verra getur leitt til versnandi uppeldisaðstæðna barna og haft varanlega slæmar afleiðingar.

·         Fólksflutningar gætu aukist verulega ef fólk missir trú á að hér náist að endurreisa efnahagslífið innan nokkurra ára.  Ef almennt er talið að hér á landi verði ekki nóg framboð af því sem lífið býður upp á annars staðar mun fólk hverfa á brott í leit að betri lífskjörum.

·         Þolinmæði eftir breytingum er ekki endalaus og þekkt er að á erfiðleikatímum aukist ofbeldi, fordómar og tillitsleysi gagnvart náunganum.

 

Af hverju á að búa á Íslandi

Ísland býr yfir sérstakri fegurð og náttúruauðlindum.  Auðlindirnar eiga að geta tryggt okkur mikil lífsgæði.  Íslendingar eiga mikla sögu - og menningararfleifð og bera sterkar taugar til þjóðar sinnar.  Fjölskyldusamfélagið er enn sterkt einkenni á Íslandi langtum meira en þekkist í nágrannalöndunum og það hefur togað í fólk að búa og ala börn sín upp hér.  Í slíku samfélagi felast mikil verðmæti sem ekki er gengið að annars staðar.  Aðgengi að menntun og heilbrigðisþjónustu er gott og lífslíkur miklar.

 

Á Íslandi gerast hlutirnir hratt og þar er hægt að gera hluti á hraða sem óhugsandi þykja í skrifræðisríkjum.  Mikilvægt er að þunglamaleiki færist ekki yfir samfélagið og dragi úr eljusemi og krafti einstaklinga.  Skilaboðin til þjóðarinnar þurfa að vera þau að hér sé verk að vinna og þörf á öllum sem vettlingi geta valdið til að viðhalda og bæta samfélagið.  Allir hafi hlutverk.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700