Atvinnulíf og fjölskyldur

Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins mun kynna vinnu sína í ítarlegri skýrslu, sem skiptist í nokkra hluta. Í þessum kafla skýrslunnar er fjallað um atvinnulífið í samfélaginu, þ.e. samband fjölskyldna og heimila við atvinnulífið. M.a. er fjallað um atvinnuleysi, fjárhagserfiðleika, hag heimilanna og atvinnulífsins og hagsýnan heimilsbúskap. Leitast er við að skilja mikilvægi atvinnulífs og fjölskyldulífs hvors fyrir annað og hvernig hagsmunir heimilanna og atvinnulífsins eru samofnir. Hér verða birt drög að texta í skýrsluna og notendum vefsins gefst kostur á að segja sína skoðun á.

Drög

Atvinnulíf og fjölskyldur

Margrét Björnsdóttir, 10. mars 2009

Atvinnulausir eru nú yfir 14 þúsund á landinu öllu. Flestir atvinnulausra búa á höfuðborgarsvæðinu eða um níu þúsund og næst flestir á Suðurnesjum eða um sextán hundruð. Margir eru atvinnulausir á Norðurlandi eystra en fæstir á Vestfjörðum eða innan við eitt hundrað manns. Atvinnuleysi er í flestöllum greinum atvinnulífsins, misjafnt er þó eftir atvinnugreinum hve atvinnuleysið er mikið. Atvinnulausir hafa fjölbreytta og ólíka menntun svo og bakgrunn.
Þarna er stór auðlind sem þarf að virkja sem allra fyrst, ekki má þjóðin við því að missa mikið að hæfu og vel menntuðu fólki úr landinu.

 

Sendu inn hugmynd
Aðsendar greinar
 
Drög að tillögum
6. drög - 15. mars 2009
8. drög - 15. mars 2009
2. drög - 10. mars 2009
5. drög - 10. mars 2009
5. drög - 10. mars 2009
Fundargerðir
2. fundur - 21. febrúar 2009
1. fundur - 6. febrúar 2009
Á döfinni
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700