Í kjölfar þess að um 85% af íslenska bankakerfinu fór á hliðina í byrjun október 2008 stendur íslenskt samfélag og efnahagslíf frammi fyrir gríðarlegum vanda og djúpum samdrætti. Stór hluti íslenskra fyrirtækja á í alvarlegum vanda, heimilin í landinu og fjölskyldur eru margar hverjar illa settar vegna mikillar skuldabyrði og atvinnuleysi hefur aukist. Þá er staða ríkissjóðs erfið í ljósi minni tekna og aukinna afborgana af skuldum.
Á öllum þessum málum og mörgum fleiri þarf að taka af festu. Mikið starf var unnið fyrstu vikurnar og mánuði eftir hrun bankanna á vettvangi ríkisstjórnar en mörg mál eru enn óleyst. Brýnt er að Sjálfstæðisflokkurinn taki forystu á þessu sviði og kynni ábyrgar lausnir og sterka framtíðarsýn á þessum erfiðum tímum. Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins er ætlað að móta tillögur og kalla eftir hugmyndum að þessu leyti.
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, greindi frá stofnun nefndarinnar á fjölmennum flokksfundi á Grand Hótel 30. janúar sl. og kom þar fram að Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, myndi stýra starfi nefndarinnar. Stefnt er að því að nefndin skili af sér skýrslu fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins sem fer fram dagana 26. - 29. mars nk.