
Vinnufundir í Endurreisnarnefndinni hafa staðið yfir í Valhöll í dag. Fundirnir hófust í morgun klukkan 10:30 og er unnið í fjórum hópum að því að velta upp tillögum og hugmyndum um endurreisnarstarfið. Um 15-20 manns eru í hverjum hópi og því alls um 80 manns sem hafa tekið þátt í starfinu í dag.