
Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur verið starfandi undanfarnar þrjár vikur og verður starf nefndarinnar nú aðgengilegt á þessum vef. Nefndin hefur það hlutverk að móta tillögur og hugmyndir fyrir Sjálfstæðisflokkinn varðandi þá miklu og krefjandi vinnu sem framundan er við að byggja upp íslenskt efnahagslíf. Nefndin er undir stjórn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og fyrrv. þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Nefndin hefur nú þegar haldið nokkra fundi þar sem mikið af góðum hugmyndum hafa komið fram en með þessum vef er stigið skrefi lengra og flokksmönnum og öðrum sem vilja leggja sitt lóð á vogaskálarnar er gefinn kostur á að koma sínum tillögum, ábendingum og skoðunum varðandi þetta mikilvæga verkefni á framfæri hér á vefnum. Unnt verður að skrifa beint inn á vefinn hugmyndir og senda til nefndarinnar auk þess sem boðið er upp á að senda inn aðsendar greinar til birtingar á vefnum. Þá verður unnt að kynna sér og segja skoðanir sínar á öllu því efni og skýrsludrögum sem nefndin lætur frá sér. Með tilkomu vefsins vonast Sjálfstæðisflokkurinn til að efla umræðu og skoðanaskipti meðal sinna flokksmanna og annarra á þessu mikilvæga sviði.