Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mun leiða starf endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins en nefndin mun starfa fram að landsfundi og móta tillögur um endurreisn og uppbyggingu atvinnulífs og efnahags landsins. Þetta kom fram í ræðu Geirs H. Haarde á fundi sjálfstæðismanna á Grand hótel í dag. Nánari tilhögun á starfi nefndarinnar verður kynnt fljótlega. Tillögur nefndarinnar verða lagðar fyrir landsfund flokksins í lok mars.