ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAALMENNTDRÖG

1. fundur

föstudagur, 6. febrúar 2009

PUNKTAR FRÁ FUNDI ENDURREISNARNEFNDAR Á NORDICA 6. FEBRÚAR 2009

Tónlistarhús
- Hver er tilgangurinn með byggingunni?
- Hvað skapar þetta mörg störf?

Hlutabréfamarkaður
- hver er nauðsynin?
- Senda almenningi í landinu hlutabréf
- Töpuðust raunveruleg verðmæti?

Atvinnuleysi
- hvaða leiðir eru færar fyrir stjórnvöld til að vinna bug á atvinnuleysi?
- Tiltekt í stofnunum ríkisins?
- Yfirvinna, mætti skera þar niður?


Vinnubrögð nefndarinnar
- er þetta ekki of stór hópur?
- Hvert er framhaldið?

Hagsýni
- undirstaðan er að halda ríkinu skuldlausu

Framtak
- mörk hins opinbera geira og einkageirans

Evrópusambandið
- hvað skal gera?
- Mikilvægt að ræða þau mál í vinnunni

Aftur til fortíðar...
- hvað hafa systurflokkar Sjálfstæðisflokksins gert?

Frelsið
- Frelsi fylgir ábyrgð!
- Gleymdum við ábyrgðinni hér á landi?

Niðurskurður
- Varnarmálastofnun
- Jafnréttisstofa
- Þjónustumiðstöðvar borgarinnar
- Fleiri stofnanir
- Mætti ekki skera þessi atriði niður?

Næstu skref Sjálfstæðisflokksins
- leggja á höfuðáherslu á bætt siðferði í viðskiptum
- mikilvægt fyrir líðan og heilsu almennings í landinu

Framtíðin
- getum við lært af einhverjum þegar við vinnum okkur út úr ástandinu?

Stjórnsýslan
- brýnt verkefni að taka stjórnsýsluna til endurskoðunar
- gera stjórnsýslunni hærra undir höfði í vinnu nefndarinnar

Spekileki!
- mikilvægt að halda í ungt og vel menntað fólk
- er hægt að leita einhverra leiða til að halda í það?

Ríkið vs. sveitarfélögin
- færa verkefni frá ríkinu til sveitarfélaganna

Íslensk fyrirtæki
- mikið að upplýsingum til um góð fyrirtæki hér á landi
- hvernig hefur nýstofnuðum fyrirtækjum reitt af undanfarin ár
- gagnagrunnur um þessi mál?
- Nýsköpun, framleiða hluti til að flytja út í þessu árferði

Útflutningstekjur
- mikilvægt að auka útflutningstekjur
- hvaða tækifæri höfum við?
- Bara álver? Eru ekki fleiri tækifæri?
- Styðja við bakið á litlum og meðalstórum fyrirtækjum
- Stofna sjóð fyrir þessa aðila?
- Eiga peningarnir allir að fara í bankana?
- Skattaívilnanir?

Ísland í framtíðinni
- nauðsynlegt að hafa atvinnu og öryggi
- einfaldara Ísland, einfalda regluverkið
- hvetja aðila til að stofna lítil fyrirtæki

Ísland og umheimurinn
- fríverslunarsamningar
- skoða EES samninginn, er samningurinn orðinn úreltur?

Endurreisn Íslands
- verðum að huga að aukinni verðmætasköpun til útflutnings

Umhverfismálin
- leggja áherslu á sjálfbært þjóðfélag

Meira vinnur vit en strit!

Atvinnuleysi hér á landi
- fækkun kaupskipa
- hvað vinna margir útlendingar á kaupskipum?
- Skrá skipin hér á landi

Hugbúnaðar
- hætta að kaupa erlendan hugbúnað
- hægt að spara milljarða

Rammaáætlanir
- ríki og sveitarfélög að gera lengri áætlanir

Hið opinbera
- mætti ekki skera vel niður þar?

Nýsköpun
- finna leiðir til að hvetja fólk til dáða að koma hugmyndum í framkvæmd
- hvaða markmið setjum við okkur?
- keyra á nýsköpun í gegnum skólakerfið; framhaldsskóla og háskóla

Landsbyggð vs. höfuðborg
- ódýrara húsnæði úti á landi

Gildismat
- leggja áherslu á að bæta kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja
- mikilvægt að leggja áherslu á jafnréttismálin

Menntamál
- leggja meiri áherslu á raungreinar
- leggja áherslu á verkmenntun og listgreinar einnig

Fasteignamat
- lækka matið á fyrirtæki

Staða heimilanna
- verðum að slá á þann ótta sem hefur gripið um sig
- verðum að blása bjartsýni og baráttu hug í fólk!

Álframleiðsla
- skapa skilyrði fyrir því að fá aðila til að fjárfesta

Fólk í öndvegi - ekki peningar!

Ríkið haldi áfram í verkefnum eins og "Rafrænt Ísland"

Framleiðsla
- framleiða raunverulega hluti, ekki "pappír"

Skattaumhverfið
- einfalda kerfið

Fyrsta hjálp
- mikilvægt að hjálpa fólki í gegnum erfiðasta hjallinn

Vantar peninga í umferð
- leita til lífeyrissjóðanna
- ná í peninga úti í heimi!

Peningamálin
- taka upp Evruna?
- Ganga jafnvel í ESB?
- Fórnum við minni hagsmunum fyrir meiri með því að ganga í ESB?

Stjórnlagaþing
- skoða það mál vel
- kjósa forsætisráðherra beinni kosningu?
- Kjörtímabil forsætisráðherra ekki meira en 8 ár

Fullnýting á náttúruauðlindum hér á landi

Ferðaþjónustan
- auðlind í aukningu ferðamanna til Íslands
- tækifæri þar

Kvótakerfið
- framsal á kvóta og veðsetning
- verðum að læra af þessum mistökum
- breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu?

Er verkefnum betur fyrirkomið hjá hinu opinbera en hjá einkaaðilum?
- einkavæðing eða einkarekstur má ekki vera "taboo" í umræðunni
- oft og tíðum eru einkaaðilar betur til þess fallnir að vinna verkin

Gildismat
- erum að fara aftur til fortíðar, sem er að mörgu leiti gott
- verðum að hlúa að þessari þróun, hlúa að fjölskyldunni

Ýmis verkefni sem hægt er að koma frá hinum opinbera til einkaaðila
- nýta landsbyggðina hvað þetta varðar

Skattaumhverfið
- einfaldara kerfi

Skóla- og heilbrigðiskerfið
- má einfalda, hagræða og forgangsraða

Huglæg gildi
- verðum að huga að fullveldinu og hver við erum

Efnahagslegur stöðugleiki
- hvernig náum við honum?
- Hvers vegna brást hann?
- Grundvallaratriði að komast að þessu áður en lengra er haldið

Skuldlaust ríki
- áhersla á að ríkið sé skuldlaust
- hvað með fyrirtækin?

Gildismatið
- mikilvægt að vera með lappirnar á jörðinni

Verðmætasköpun
- verðum að líta til náttúruauðlinda okkar
- ekki bara hjá stórum aðilum, heldur verðum við að líta til litlu aðilanna, eins og garðyrkjubænda
- vatnsútflutningur, gríðarleg tækifæri þar

Sjálfstæðisstefnan
- mikilvægt að fram komi í "bókinni" frelsi, framtak og ábyrgð
- hver er sinnar gæfu smiður, mikilvægt þegar við gerum upp fortíðina
- verðum að halda áfram með einkavæðingu þar sem hún á við
- stjórnsýslu endurbætur
- standa vörð um það sem vel hefur verið gert

Atvinnusköpun
- útflutningur á heilbrigðisþjónustu

Verknám
- skipasmíði
- söðlasmíði
- fáir ef nokkrir sinna þessum störfum
- verðum að skoða þessi mál

Traustið, verðum að ávinna okkur traust

Ríkisútvarpið
- senda hlutabréf til landsmanna
- verður að taka rækilega til hvað þessi mál varðar

Launamál í þjóðfélaginu
- endurskoða launaþróun hjá "toppunum", bæði innan ríkisins og eins í einkageiranum

Leiða saman teymi háskólanema og atvinnulífsins
- flytja út rafmagn (Margrét Björnsdóttir, ath. Betur)

Gjaldeyrismál
- skoða hvar markaðir verða í framtíðinni
- getur ekki verið fleira í dæminu en Ísl. Króna eða Evra?

Nýta okkur stuttar boðleiðir hér á landi í viðskiptum - höfum forskot á aðrar þjóðir

Einbeita okkur að því sem við erum góð í og því umhverfi sem við kunnum á

Heilbrigðisþjónustan
- mikil sóknarfæri í að fá fólk til að koma til Íslands í aðgerðar og sækja í aðra þjónustu

Samkeppnishæfni
- tollakerfið okkar er úr sér gengið, má einfalda kerfið til muna

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700