ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAALMENNTGREINAR

Markvissar og skynsamar lausnir

Vilhjálmur Egilsson - föstudagur, 20. febrúar 2009

Íslenskt samfélag og efnahagslíf er í vanda statt. Um það hafa fallið svo mörg og sterk orð undanfarnar vikur og mánuði að það væri að bera í bakkafullan lækkinn að bæta miklu við þá lýsingu. Staðan er okkur flestum vel kunn; hún er erfið og takast þarf á við hana. Þar þurfa margir að koma að, fyrirtækin verða að sýna mikla ráðdeild og útsjónarsemi í sínum rekstri næstu mánuðina, fjölskyldurnar og heimilin í landinu að fara með löndum og forgangsraða í sínum útgjöldum og ríkissjóður og sveitarfélög verða að skera niður og hagræða í sinni starfsemi. Það stendur hins vegar upp á stjórnmálaflokkana í landinu að halda utan um þetta verkefni, skapa því ákveðna heildarsýn og kynna markvissar og skynsamar lausnir sem sátt getur náðst um.

Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki skorast undan þessu verkefni. Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins er hugsuð til þess að móta slíkar lausnir fyrir flokkinn. Henni er veittur knappur og afmarkaður tími til að vinna sína vinnu og áætlað er að nefndin skili af sér sínum tillögum fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins í lok mars. Ég tel að niðurstaða nefndarinnar, þ.e lokaskýrsla hennar, verði að geyma bæði yfirsýn á verkefnið og framsýni en líka markvissar og útfærðar hugmyndir og tillögur sem Sjálfstæðisflokkurinn mun gera að sínum á landsfundi flokksins.

Til þess að móta þetta starf nánar og leita eftir hugmyndum hefur verið leitað í helstu auðlind Sjálfstæðisflokksins – flokksmenn sjálfa. Innan flokksins starfar mikill fjöldi fólks sem hefur reynslu, menntun og þekkingu af rekstri fyrirtækja, fjármálum og því hvernig tekist er á við vandamál. Að sama skapi býr flokkurinn yfir skapandi hugsun sem þarf með í svona verkefni.

Stofnun nefndarinnar var kynnt á fjölmennum fundi sjálfstæðismanna 30. janúar sl. og nú þegar hafa fjöldamargir fundir á hennar vegum verið haldnir. Þessir fundir hafa verið eins konar hugflæðisfundir þar sem orðið hefur í reynd verið gefið laust og fólki veitt færi á að tjá hug sinn og í kjölfarið falið að móta hugmyndir sínar nánar. Það er mikill kraftur í þessari vinnu og ég er afar vongóður um að hún eigi eftir að skila góðum árangri.

Það hafa aftur á móti ekki allir kost á því að sækja þessa fundi, sem hafa til þessa verði haldnir í Reykjavík. Til þess að starf nefndarinnar verði aðgengilegt sem flestum, m.a. þeim sem eru búsettir á landsbyggðinni, hefur verið ákveðið að setja upp vef nefndarinnar þar sem áhugasömum gefst kostur á að koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri. Von mín er sú að vefurinn verði bæði vettvangur fjölmargra frjórra hugmynda og tillagna en einnig líflegra skoðanaskipta um þetta viðfangsefni. Þannig er unnt að setja inn athugasemdir og skoðanir við allt það efni sem fram kemur á síðunni, þar á meðal drög að einstökum köflum úr skýrslunni og ennfremur gefst notendum kostur á að birta aðsendar greinar á vefnum. Þá verða birtar fréttir af starfinu og hvernig vinnunni vindur áfram.

Eins og áður segir er mikið undir fyrir Sjálfstæðisflokkinn að vel takist til í þessu verkefni. Ég er sannfærður um að sá kraftur sem verið hefur í nefndastarfinu að undanförnu, ásamt þeim möguleikum sem nýr vefur færir okkur, mun gera það að verkum að Sjálfstæðisflokkurinn mun hafa alla burði til þess að leiða endurreisn íslensks efnahagslífs.

 

 

Athugasemdir

Björgvin Þóroddsson
Þórshöfn
25/02/2009 - Kl. 18:22

Það er gott framtak að opna þessa síðu og gefa öllu Sjálfstæðisfólki kost á að vera með og móta nýjar áherslur,í leit að sameiginlegun markmiðum fyrir bættum hag lands og þjóðar.
það ætti að auðvelda starf Landsfundarfulltrúa þegar á landsfund kemur eftir einn mánuð,að vera búin að ræða þau mál sem hæst ber í dag.
það er kannski bara gott að byrja umræðuna á því að gá til veðurs og sjá hvernig landið liggur í hinni pólitísku stórhríð sem nú geisar í heiminum.
og þá kemur kannski í ljós að við stöndum betur að vígi en flestar þjóðir, að því leiti að okkar þjóðareignir eru næstum því alveg nýjar,
Skólar atvinnuhúsnæði íbúðir menningarhallir og afþreyingarhús fiskiskip og flugvélar að ógleymdum fjarskiftakerfum hitaveitum og Rafveitum um allt landið.
Það er jú ekkert merkilegt þó Alþjóðgjaldeyrissjóðurinn telji að okkar staða sé öfundsverð,með alla þessa hreinu orku þetta gríðarlega stóra land og næstum örugglega olíulindir sem gera alla skattheimtu á landsmenn óþarfa innan fárra áratuga,nú vill kannski einhver segja við eigum svo miklar skuldir að við getum ekkert gert annað en borga af þeim næstu árin.. jú þjóðarbúið okkar á nokkrar skuldir á þjóðareignum okkar,en ekkert til að skæla út af.við byggðum ekki allar
okkar brýr, ekki heldur leiðslur þær og lagnir sem um landið okkar lyggja.
til þess að næstu kynsslóðir fengju þær alveg skuldlausar.en við reistum þetta allt til þess að börnin okkar og barnabörn þirftu þess ekki.
eg skrifa þessar línur til að næsta skref á eftir Vilhjálmi sé komið.og leiðin verði greið fyrir nýjar og nauðsinlegar hugmindir. í okkar flokki.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Endurreisnarvefur Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700